Gyrfálka mótið
Önnur mótUpplýsingar
Ytri tenglar
Gyrfálka Mótið
Keppnin er unisex í öllum aldursflokkum og bogaflokkum, 60 örvar og búið. Einfalt, fljótlegt og gaman. Virkar alveg eins og Sunnudagar í setrinu (fyrir fólk sem tók þótt á því).
Kostar 2.000kr að taka þátt í meistaraflokki og frítt fyrir u21, u18 og u16
Mæting, skráning og greiðsla á mótið er allt í Bogfimisetrinu milli klukkan 14:00 og 14:45. Mótið byrjar svo með 3 upphitunarumferðum kl 15:00. Semsagt þú mætir bara á staðinn ef þig langar að keppa og skráir þig á staðnum á mótið, ísí písí
Markmiðið er að halda mót reglulega í hverjum mánuði, en mögulegt að einhver mót eiga eftir að detta út t.d. þegar það eru Íslandsmeistaramót eða jól og þannig. Mótin verða skráð í mótalista BFSÍ.
Tilgangurinn með mótunum er aðallega að vera með reglubundin mót sem fólk getur tekið þátt í og reynt að bæta sinn persónulega árangur. Og bara til að vera með, hittast og hafa gaman á meðan maður er að skjóta. Mótið er samstarfs verkefni Bogfimisetursins, BFSÍ og BF Bogans. En allir í öllum aðildarfélögum BFSÍ geta tekið þátt.
Mótin verða einnig Íslandsmetahæf.
Upplýsingar um bogaflokka, fjarlægðir og skífustærðir:
Sveigbogi, trissubogi og berbogi:
Meistaraflokkur: 18 metrar á 40cm skífu
50+: 18 metrar á 40cm skífu
U21: 18 metrar á 40cm skífu
U18: 18 metrar á 60cm skífu
U16: 12 metrar á 60cm skífu
Langbogi: Allir aldursflokkar: 12 metrar á 60cm skífu
Áhugamenn/Byrjendur: 12 metrar á 60cm skífu
Vertical Triple og Vegas Triple skífu setup í boði fyrir þá sem vilja og littla tían gildir fyrir trissuboga.